Billing & shipping address:

Name: Nafnið þitt, t.d. Jón Jónsson

Address:ShopUSA, 1424 Baker Road

Address 2:Þitt ShopUSA suite-númer

City and zip:Virginia Beach, 23455

State:Virginia (VA)

Tel:757-641-3696

Gengi

USD:127.88 flag

Skrá sendingu

Reiknivél

Reikna

Samtals gjöld kr:

Heildarverð:

heimilisfang_toppur

Það er stefna ShopUSA að láta verkin tala og vinna traust viðskiptavina með frammistöðu. 

Helstu áfangar í rekstri ShopUSA eru:


Maí 2006: Þjónustumiðstöð í Hlíðarsmára lokað þar sem hún var aðallega miðstöð fyrir afhendingu sendinga en með samningi við Íslandspóst um dreifingu á pökkum heim að dyrum þá ákvað ShopUSA að loka þjónustumiðstöð í Hlíðarsmára. Öllum fyrirspurnum er svarað í gegnum tölvupóst.

Nóvember 2005: Ný síða og nýtt skráningarkerfi. ShopUSA byrjar að senda alla pakka með Íslandspósti hvert sem er á Íslandi. Nýtt greiðslukortakerfi sett af stað sem gerir kúnnum kleift að greiða öll gjöld fyrirfram og fá svo pakkann sendan heim.

Maí 2004:  Þjónustumiðstöð opnuð að Hlíðasmára 19 í Kópavogi.
Febrúar 2004: Gestafjöldi yfir 300,000 sem jafngildir því að hver Íslendingur hafi heimsótt vefinn einu sinni. 

Desember 2003: Vikulegar flugsendingar hefjast, afgreiðslutími styttist úr 3 vikum í 6 daga.

Mars 2003: Fyrsta sending með vörum kemur til Íslands sjóleiðis.
Febrúar 2003:  ShopUSA.is opnað.

Markmið ShopUSA eru eftirfarandi:

1) Gefa viðskiptavinum fleiri valmöguleikum í verslun. Á Netinu má finna ótal vörutegundir og vörumerki sem eru ófáanleg á Íslandi.  

2) Að bjóða viðskiptavinum færi á að kaupa vörur á lægsta verði. Hvergi er verðsamkeppni meiri en á Netinu. Netverslanir hafa yfirleitt lægri kostnað en aðrar verslanir, t.d. ódýrara húsnæði, lager, meiri sjálfvirkni, færri starfsmenn o.s.frv.  ShopUSA nær hagkvæmni í flutningum og tollafgreiðslu með miklu magni og safnsendingum.

3) Að auðvelda viðskiptavinum vörukaup. Netverslun er opin allan sólarhringinn, og reyndar berast flestar pantanir milli kl 22 og 24.   Viðskiptavinir geta verslað hvar sem þeir tengjast Netinu.  ShopUSAsvarar öllum tölvupósti innan við 24 tíma frá móttöku.

4) Að opna viðskiptavinum möguleika á verslun við Bandaríkin. Algengt er að bandarísk fyrirtæki senda ekki vörur erlendis (til Íslands) en ShopUSA gefur þér kost á móttökustað í Bandaríkjunum (Virginia Beach í Virginia).

5) Að stuðla að gagnsæi í verðlagningu. Reiknivélin segir þér fyrirfram nákvæmlega hvað varan kostar komin í þínar hendur með öllum gjöldum greiddum.  Á augabragði getur þú séð hvað varan kostar komin í þínar hendur að teknu tilliti til flutningskostnaðar, tolla,vörugjalda, virðisaukaskatts og annars kostnaðar.  
6) Að einfalda flókið ferli. Öll pappírsvinna og tollfrágangur er unnin fyrir þig og þú greiðir bara eitt afgreiðslugjald ofan á erlenda kaupverðið.  Þú lætur Netverslunina senda til okkar í Virginia og við afhendum þér vöruna á Íslandi gegn fyrirfram umsömdu gjaldi.


ShopUSA.is franchise aðili á vegum ShopUSA Inc.


ShopUSA Iceland
Skeifan 19 - 2. hæð
108 Reykjavík
Iceland
Sími: 696 0033 
Service@ShopUSA.is